SamSTEM verkefnið

Hugtakið fjórða iðnbyltingin vísar til tækniframfara undanfarinna ára auk þeirra breytinga sem í vændum eru. Til að mæta þessum breytingum er nauðsynlegt að fjölga brautskráningum í svo kölluðum STEM greinum (vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði) en það er megin markmið þessa verkefnis. Svo það markmið náist þarf að laða fleiri nemendur að slíku námi en einnig að minnka brotthvarf nemenda úr námi. Þrír háskólar, HA, HÍ og HR, sem allir bjóða upp á nám í STEM greinum munu vinna saman að þessu mikilvæga markmiði.

Til að laða fleiri nemendur að námi í STEM greinum verður kynningarefni útbúið þar sem námi og áhugaverðum störfum í STEM greinum verður lýst. Að auki verður útbúið fræðsluefni sem mun auðvelda nemendum að átta sig á hvaða undirbúningur er nauðsynlegur stefni þau á slíkt nám. Til að vinna gegn brotthvarfi verður leitast við að kortleggja vandann og finna úrræði t.d. með breyttum kennsluháttum. Að auki verða netnámskeið í eðlisfræði, efnafræði, forritun, stærðfræði og tölfræði þróuð með það að markmiði að veita framhaldsskólanemum, hvar sem er á landinu, tækifæri til að undirbúa sig vel undir nám í STEM greinum. Þetta verður gert með virkri samvinnu framhalds- og háskólakennara.

Stjórn SamSTEM

Anna Helga Jónsdóttir

Tölfræðingur við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Martin Jónas Björn Swift

Verkefnastjóri við Nýmennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Auðbjörg Björnsdóttir

Forstöðumaður kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar

Bjarnheiður Kristinsdóttir

Lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Freyja Hreinsdóttir

Prófessor í stærðfræði og stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Ingunn Gunnarsdóttir

Háskólakennari við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík

Þátttakendur í SamSTEM

Benedikt Steinar Magnússon

Dósent í stærðfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson

Dósent í efnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Hafsteinn Einarsson

Lektor í tölvunarfræði við Verkfræði- og raunvísindasvið Háskóla Íslands

Hjálmtýr Hafsteinsson

Dósent í tölvunarfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Ingólfur Gíslason

Aðjúnkt í stærðfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Jón Emil Guðmundsson

Lektor í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Kári Halldórsson

Aðjúnkt við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Katrín Lilja Sigurðardóttir

Aðjúnkt í efnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

María Óskarsdóttir

Dósent við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Olivier Moschetta

Lektor við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík

Rögnvaldur Möller

Prófessor í stærðfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Sean Michael Scully

Aðjúnkt í efnafræði við Háskólann á Akureyri

Sigrún Helga Lund

Prófessor í tölfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Sigurður Ingi Erlingsson

Prófessor í eðlisfræði við Verifræðideild Háskólans í Reykjavík

Sigurður Örn Stefánsson

Prófessor í stærðfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Snorri Þ. Ingvarsson

Prófessor í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Stefán Guðnason

Forstöðumaður símenntunar við Háskólann á Akureyri

Steinunn Gróa Sigurðardóttir

Háskólakennari við Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Unnar Arnalds

Prófessor í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands