Sumarið 2026 stendur SamSTEM á nýjan leik fyrir námskeiðum fyrir kennara um aðferðir hugsandi skólastofu. Um er að ræða kennsluaðferð sem meðal annars felur í sér að nemendur leysa röð verkefna við hæfi í litlum slembivöldum hópum með áherslu á að nemendur hugsi og dýpki skilning sinn á viðfangsefnum kennslustundarinnar.

Námskeiðin eru einkum ætluð kennurum á háskólastigi og framhaldsskólastigi (af því að styrkur fyrir námskeiðin tengist þeim skólastigum) en grunnskólakennarar eru líka hvattir til að skrá sig og verður þá raðað í laus pláss eins og mögulegt er.

Innifalið í námskeiðinu er kaffi og kruðerí og hádegismatur. Aðgengi er fyrir hjólastóla. Þau sem nota heyrnartæki geta fengið nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst. Námskeiðin eru kennd á ensku en þátttakendur geta talað íslensku sín á milli.

Haldin verða eftirfarandi námskeið og komast allt að 60 manns á hvert þeirra. Peter Liljedahl, prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser háskólann í Kanada, sem lagt hefur grunninn að rammanum um hugsandi skólastofu (e. Building Thinking Classrooms) kemur til landsins til að halda námskeiðin:

Spurt-og-svarað fundur mánudaginn 25. maí 2026

Heimsókn Peters mun hefjast með spurt-og-svarað fundi á annan í hvítasunnu með kennurum allra skólastiga sem reynslu hafa á aðferðum hugsandi skólastofu og vilja taka þátt í samtali um ákveðnar lausnir eða útfærslur á aðferðunum í því samhengi sem þau starfa í. Hér eru myndir frá sambærilegum fundi árið 2025, en þá mættu tæplega 30 kennarar af grunn-, framhalds- og háskólastigi. Boðið verður upp á kaffi og smá meðlæti.

Inngangsnámskeið 26.-27. maí 2026

Námskeiðinu er sérstaklega beint að háskóla- og framhaldsskólakennurum sem ekki hafa áður sótt námskeið Peter Liljedahl. Þó verður möguleiki fyrir grunnskólakennara að skrá sig og við munum bjóða þeim laus pláss eins og mögulegt er. Um er að ræða tveggja daga námskeið sem mun fara fram í Sögu við Hagatorg í Reykjavík í stofu sem hefur verið útfærð sérstaklega fyrir hugsandi skólastofu. Verkefnin á námskeiðinu tengjast stærðfræði en þess er gætt að kennarar allra faggreina geti tekið þátt óháð stærðfræðireynslu.

Hér að neðan eru myndir frá sambærilegu námskeiði sumarið 2025.

Framhaldsnámskeið 28. maí 2026

Námskeiðinu er sérstaklega beint að háskóla- og framhaldsskólakennurum sem hafa áður sótt námskeið Peter Liljedahl og notað aðferðir hugsandi skólastofu. Þó verður möguleiki fyrir grunnskólakennara að skrá sig og við munum bjóða þeim laus pláss eins og mögulegt er. Námskeiðið mun fara fram í Sögu við Hagatorg í Reykjavík í stofu sem hefur verið útfærð sérstaklega fyrir hugsandi skólastofu. Verkefnin á námskeiðinu tengjast stærðfræði en þess er gætt að kennarar allra faggreina geti tekið þátt óháð stærðfræðireynslu.

Hér að neðan eru myndir frá námskeiði sumarið 2025.

Sérhæft námskeið fyrir kennara annarra faggreina 29. maí 2026

Námskeiðinu er sérstaklega beint að háskóla- og framhaldsskólakennurum sem kenna aðrar faggreinar en stærðfræði og vilja beita aðferum hugsandi skólastofu til þess. Það mun fara fram í Sögu við Hagatorg í Reykjavík í stofu sem hefur verið útfærð sérstaklega fyrir hugsandi skólastofu.

Sem dæmi um aðlögun fyrir aðrar faggreinar má nefna það hvernig við veljum verkefni sem fá nemendur til að hugsa.

Undirliggjandi grunnhugsun helst sú sama: Við viljum skapa lærdómsumhverfi sem fær nemendur til að taka virkan þátt, hugsa, rannsaka og leysa þrautir.